25. október 2007 klukkan 23:02
Þá er komið að því að breyta um vettvang.
Ég ætla að hætta með bloggar.is Hef fengið frábæra þjónustu frá þeim ekkert út á það að setja en mig langar að byrja uppá nýtt,
þá af öðrum forsendum og á nýjum stað
enda er kominn nýr kafli í mínu lífi.
Tilvonandi síða verður auglýst hér von bráðar.
Ég sé að það eru MARGIR sem kíkja inná þessa síðu og væri gaman ef það héldi áfram á nýja vettvangnum.

Takk æðislega fyrir þúsund og eitt fallegt orð
mér til stuðnings á þessari síðu
væmið væmið, væmið væmið væmið og meira væmið sem mig langar að segja en læt þetta duga
Kristín Linda Sigmundsdóttir
17. september 2007 klukkan 00:41
Búin að vera með svakalega ritstíflu undanfarið. Óþolandi þar sem að nóg hefur gerst og mikið framundan.
Ég hafði það sem afsökun í langan tíma að ég væri komin með ógeð af síðunni en svo er ekki raunin.
það er bara ritstífla í gangi.. þið sem hafið verið svona dugleg að kommenta takk fyrir :)
Ég mun koma með svaka færslu von bráðar
Knús til ykkar allra
P.S Takk allir sem hafa sent mér kveðjur og hringt í mig til að óska mér til hamingju með útskriftina.
Bendi á skemmtilega síðu Gvendar Jó www.gummiarna.com
Kristín Linda Sigmundsdóttir
15. ágúst 2007 klukkan 20:24
Your my Best frieeeennnnd!

Jæja þá er bs-ritgerðinni lokið, vonandi. maður verður víst að bíða eftir eikunn ég veit ekki hverskonar bull það er .. ég vil bara tíunna á borðið fyrir effortið sem maður leggur í þetta ussssss....
Ég skellti mér til Eskifjarðar eftir að ég skilaði ritgerðinni af mér. Ég fór á Spa ala mæja .. It was gr8 !!
Ég og mæja höfum ekki verið svona lengi saman í tæp 4 ár held ég .. við erum jú búnar að hittast einstaka sinnum og alltaf að kjafta á skype.. það var svo gott að hitta hana ég lifi á því út árið!
Hún er fyndnasta vinkona mín og ein af þeim bestu sem ég á stendur með manni í blíðu og stríðu og getur verið ýkt heiðarleg við mann sem er mjög mikill kostur að mínu mati. þoli ekki þegar fólk segir við mann þú ert ógisslega flott í þessum buxum en svo lítur maður út fyrir að vera algjör hnýsa þegar maur lítur í spegil. Mæja myndi segja oij ekki vera í þessu þú lætur mig líta illa út með því að vera nördaleg heheheh.. og ég reyndar myndi segja slíkt hið sama.. við erum svo yfirborðskenndar!!

Eftir að hafa skoðað gæfar rollur og áhugavert typpasafn á Borgafirði - Eystri var partýstuð í betlehem. við skvísurnar gerðum okkur til og elíta eskifjarðar mættu til til mæju. ég komst að því að fleirri hafa steiktan húmor líkt og ég og mæja og fannst mér ekkert smá gaman. Takk skvísur fyrir stuðið! Sigga fær plús kvöldsins fyrir bros allan hringinn alltaf og þórdís fyrir að þekkja nær alla sem ég þekki heheh.. Guðlaug tók líka kaldhæðnina og var þetta bara brill.
Mæja kenndi mér fullt af austfirskum orðum sem hún notar í talmáli og lýk ég færslunni með þeim.. gæti skrifað fullt meir nenni ekki meir í bili er með kjúlla í ofninum
Hnusa : lykta eða þefa
Skyssa: mistök á sms-i
Brók : g-strengur
arg það var eitthvað meir man ekki í bili ..
Takk Fyrir æðislega helgi elskan mín
næst verður skrifað um dinnar partýið á domo með pallla og mæju .. hmmmm eruði ekki spennt !?
Kristín Linda Sigmundsdóttir
27. júlí 2007 klukkan 01:52
Ég er á fullu núna að skrifa Bs-ritgerðina mína, hún fjallar um árangursmælingar, árangursstjórnun og stefnumiðað árangursmat. þetta er engin smá vinna sem virðist aldrei enda, og ég er ekki með bestu einbeitinguna omg.
Það er fullt að frétta set niður punkta
Ég er að blogga pínu á myspace... www.myspace.com/struni
Mæja vinkona missti eitil og tekur því með stóískri ró knús elskan!
Dagbjört og Lalli GIFTU SIG Í PARÍS og ég og Gummi vorum einu vitnin bara fallegt
Tengdó keyptu sumarbústað í vaðnesi, fá afhennt nk sunnudag
Lilja Ösp er að flytja heim. Þá getum við kanski að fara að taka kaffibollan á þetta
Ásta jóh er hætt að reykja omg til hamingju skvís
Ég var að fá Ipod shuffle frá Gumma .. love u hun!
Ég er að fara að flytja í glænýja íbúð eftir mánuð
Ég er að fara í mastersnám í HÍ eftir rúman mánuð
Ég byrjaði í ræktinni en datt svo í nammið :(
Er að fara til Mæju á Eskjó eftir rúmar 2 vikur jeij :D
omg segið svo að það sé ekki nóg að gera
Það verða allir að fyrirgefa mér ef ég er ekki að hringja mikið á fyrrabragði næstu vikur ég er ekki tengd við jörðina.. en það þýðir ekki að mér þyki ekki vænt um ykkur skvísur.. þið vitið hverjar þið eruð !
Kristín Linda Sigmundsdóttir
24. júní 2007 klukkan 15:57
Reglulega hugsa ég um að hætta með þessa síðu... afhverju gerist það þegar maður er að reyna að halda uppi bloggsíðu um daginn og veginn.. um sjálfan sig eða sögur sem manni dettur til hugar að einhver löngun segir neeaahhh nenni ekki meir. Er þessi síða fyrir mig eða þá sem að hugsanlega lesa þessa síðu?
Ég er ekki viss um hvort ég haldi þessari síðu uppi mikið lengur .. en það verður bara að koma í ljós, fer eftir því hvernig ég verð stemd næstu daga. Einnig var ég að huga að því hversu opið líf mitt væri fyrir almenning. Ég googlaði mig um daginn og hinar ýmsu síður og greinar birtust. Ég ætti kanski að huga að því að læsa því sem ég set á internetið. Ég meina hversu mikið vill maður að almenningur sjái, þótt einstaka vinir, ættingjar og kunningjar hafa gaman af því að fylgjast með því sem ég tek mér fyrir hendur.
Nú er frá því að segja að ég er brennd eins og karfi í framan og á efri hluta líkamans, einnig var ég að komast inn í Mastersnám Háskóla Íslands þ.e MS í Alþjóðaviðskiptum og markaðsmálum, ég er voða spennt yfir því þó svo að smá kvíði fylgi þar með..
Þessa dagana rífst ég við sjálfan mig hvort Bs ritgerðin mín eigi að vera svona eða hinsegin, þessi spurning eða önnur, hvort ég eigi að skrifa meira eða lesa.
Elsku svilkona mín átti afmæli í gær heil 26 ár .. Vonandi áttiru æðislegan Dag Eva mín.. og takk fyrir u know what um daginn!!! Hér með býð ég þér formlega út að borða í tilefni dagsins
youre choise
Yfir í allt annað...
Íbúðin verður tilbúin í byrjun september, ég hef samt ekki mikið séð unnið í henni í týndu njarðvík, en vonandi verður hún á áætlun. við hjúin vonumst til að geta flutt inn fyrir útskrift. Það er soldið magnað að ég byrja í námi við HÍ 3 september en útskrifast ekki frá Bifröst fyrr en 7 sept.
Annars hef ég það mjög gott hjá tengdaforeldrum, heitur matur á kvöldin, hrein föt brotin saman við rústokkin, uppbyggileg samtöl og umhyggja. Það er voða gott að vera í foreldrahúsum.
Hafið það gott nær og fjær, þú ókunnugi, kunnugi eða ættingi. Gangi ykkur vel með það sem þið takið ykkur fyrir hendur og munið að það er EKKERT sem þið getið ekki tekið ykkur fyrir hendur, allir vegir opnir og tækifærin eftir því.
Prímadonnan í foreldrahúsum kveður að sinni.
Kristín Linda Sigmundsdóttir
11. júní 2007 klukkan 10:34
je suis islonde, je adoire mon amie... je avec france .. Held að þetta sé stafað rétt ..
Ég er að fara til PARÍSAR með Gummlos mínum. Dagbjörtu og Lalla.. I´ts about bloody time!!!!!!
Þegar ég var ung, lítil 8 ára trítla þá vorum ég og Dagbjört bestustu vinkonur í heimi við vildum helst búa saman og gera allt saman enda vildi ég oft stjórna henni (I´m sorry beibí) Nú í dag hefur hún völdin
Dagbjört flutti síðar til Frakklands með foreldrum hennar á vínbúgarð í bordeux France, bara magnað .. við skrifuðumst á, liggur við á hverjum degi og ég bjó til í höfðinu á mér þennan framandi stað, þar sem alltaf var sól, fuglarnir sungu og fiðrildin umluku mann. Mjög ýmindunarveikt barn.
Dagbjört kom heim á sumrin og næstum bjó hjá mér í fossvoginum. þá létum við okkur dreyma um að flytja til Frakklands.
Nú eru liðin 17 ár og við ekki en farnar saman. Loksins erum við að fara saman og ég get ekki beðið. I´m going to Paris. Reykingabannið verður ekki sett á fyrr en á næsta ári hehehhe yesss!!!
Þetta verður geggjað ég ætla að vera algjör skvísa og voða fágðu eins og audry heburn, ég vil vera alveg eins og hún þegar ég verð stór.. jæja varð að deila þessu með ykkur, ég er bara spennt.
Kristín Linda Sigmundsdóttir
05. júní 2007 klukkan 22:35
Heil og sæl...
Vá hvað það hefur verið mikið að gera undanfarið.. ég er að leggja lokahönd á veru mína hér á Bifröst einungis 9 Dagar eftir, virkilega sérstök tilfinning.. en náminu sjálfu er ekki lokið þar sem að bs ritgerðin er eftir.
Punktar um mig:
Sótti um í Mastersnámi í HÍ alþjóðaviðskipti og markaðsmál .. það var fyrir valinu
(skrifa meira um það síðar) Vona að ég komist inn
Flytjum í Nýja íbúð í Innri Njarðvík, nánar tiltekið tjarnarbakka8 fáum afhent í byrjun september.
Hef verið að læra ógiiiiisssslega mikið
Keypti mér miða á AIR .. er einhver að fara ???
Hef það gott, þótt ég sé ekki alveg með sjálfri mér undanfarið en ég reyni að lifa í deginum í dag (",)
Svo er chris cornell að spila í höllinni í septemer man hvað ég ætla að ná mér í miða læt fylgja slagara hér.
http://www.youtube.com/watch?v=c2MgwAJrfXo&mode=related&search=
Kristín Linda Sigmundsdóttir
24. maí 2007 klukkan 16:24
Leiðindavesen, Ég er búin að vera rosalega slöpp alla þessa viku svakalegir magakrampar og sef lítið vegna verkja.. ég var svo heppin að finna voltarin töflur uppí skáp og hef tuggið þær.. virðist vera það eina sem virkar á verkina.. þetta eru magabólgur hef fengið svona áður og búin að hafa samband við lækni og svona..
það er bara að slaka segir hann .. SLAKA SLAKA hugsaði ég með mér veit hann ekki að ég er að klára bs nám eftir 22 daga og margt að gerast á næstu vikum og mánuðum.. ohhh okei slaka bíddu hvernig var það aftur anda inn anda út.. anda inn .. anda út... okei ég er slök .. shiiit þarf að skila verkefni .. nei slaaaka.. ohh ég þarf að fara að huga að því að pakka.. neibb slaaaaka.. ohhh bíddu þarf að tala við þennan um þetta og hitt og svona og hinsegin .. kannist þið við þetta .. neibb læknirinn segir slaaka og þá þarf maður víst að fara í sturtu, bað og anda inn og út..
Ég fór þá að einbeita mér að því að það sé að koma sumar.. skellti mér í sturtu setti á mig góða brúnkukremið frá tengdó og djúpnæringu í hárið mmmm okei komin með heitan kaffibollann við hönd ahhhhh okei hvenær get ég hætt að slaka og haldið áfram að læra???
Jæja sumarið er tíminn. Hafið það gott og verið góð við náungan, náungin gæti orðið besti vinur þinn í framtíðinni maður veit aldrei oooooggggg slaaaaka.
Kristín Linda Sigmundsdóttir
24. maí 2007 klukkan 02:17
SIGURVEGARI AMERICAN IDOL 2007
MAGNAÐUR ÞÁTTUR!!!!
Þetta var rosalegur þáttur yfir 70 milljónir manna kusu og hún bara 17 ára stúlkan, foreldrar og fjölskylda hennar þurfa aldrei að vinna aftur!! enda þótt það skipti ekki öllu máli er þetta bara magnað ... mér fannst þau bæði jafn góð en á misjafnan hátt .. eiga bæði eftir að ná langt.
Það sem var lang flottast við þáttin er að það var beatles tribute! ég verð að redda mér þessum þætti einhvernveginn hann var algjör snilld.. jæja best að halda áfram að læra... back to reality
Kristín Linda Sigmundsdóttir
16. maí 2007 klukkan 12:04
Heil og sæl...
Það er svo mikið að gera núna að ég fæ mig ekki til að sinna öðrum áhugaverðum hlutum... þó kemur almennilegt blogg von bráðar.. þangað til getið þið stytt ykkur stundir:
PLÍS TAKIÐ KÖNNUNINA !!! ER ALVEG TÝND
Myndir sem ég mæli með í tengslum við nám mitt
The corporation - www.corporation.com - þessi mynd snerir ykkur !!! mæli með henni fyrir fólk sem hugar að umhverfinu... Sirrý þú ættir sérstaklega að sjá hana í tengslum við þitt nám.
The yeas man
The Insider (2003)
Wall street (1987)
Thank you for smoking
Allt snilldar myndir sem komu mér á óvart .. ég er farin að velta því fyrir mér hvort það sé verið að hafa okkur þ.e samfélagið að fíflum ???
Hafið það svo gott og verið skynsöm í lífinu!
Kristín Linda Sigmundsdóttir